Fréttir

Kópal Magni á flísar, plast og fleiri erfiða fleti

  04.11.2016

Fram að þessu hefur reynst erfitt að ná góðri viðloðun á mörgum efnum, s.s. flísum, plasti, allskyns málmum o.fl. Kópal Magni leysir nú þetta vandamál með frábærum árangri.

Undanfarið hefur færst í aukanna að mála flísar á heimilinu, hvort sem það er á baðherbergisveggjunum, milli eldhúsinnréttinga eða á gólfflísarnar. Hins vegar hefur oft reynst erfitt að fá málninguna til að tolla á flísum. Til að tryggja góða viðloðun er best að grunna flísarnar með Kópal Magna og mála svo yfir. Þessi aðferð hefur svínvirkað, og margir búnir að gefa flísunum nýtt líf í staðinn fyrir að endurnýja þær með tilheyrandi raski.

 

Frábær viðloðun á plast

Á fjölmörgum heimilum eru innréttingar, skápar, borðplötur og margt fleira með plasthúð. Þegar kemur að breytingum á plasthúðum flötum er tilvalið að grunna með Kópal Magna, og nota svo viðeigandi lakk yfir. Einnig má nota Kópal Magna  til málunar á PVC gluggum og hurðum

Kíktu við til okkar og kynntu þér frábæra eiginlega Kópal Magna.
Alltaf heitt á könnunni

Recent Posts

    Málning á 30% afslætti

      24.10.2017

    Kláraðu málningarvinnuna snemma fyrir jólin

    Kópal Magni á flísar, plast og fleiri erfiða fleti

      04.11.2016

    Fram að þessu hefur reynst erfitt að ná góðri viðloðun á mörgum efnum, s.s. flísum, plasti, allskyns málmum o.fl. Kópal Magni leysir nú þetta vandamál með frábærum árangri.

    Kópal Akrýlhúð á álagsmikla veggi

      09.09.2016

    Þegar mála á veggi sem eru á miklu álagssvæði þá skiptir máli að velja réttu málninguna.

    Blöndunartækja dagar

      06.09.2016

    20% afsláttur af blöndunartækjum í september

    Kork gólfefni

      25.08.2016

    Kork gólfefni henta mjög vel á flest heimili. Þau eru sérstaklega hlý viðkomu og henta því vel þar sem gólfkuldi er mikill. Kork gólfefni fá sérstaka yfirborðsmeðferð sem gerir það að verkum að lítil sem engin hætta er á að börn, aldraðir eða hreyfihamlaðir renni til á þeim. Það er mjög auðvelt að halda þeim hreinum og fallegum, og henta því vel fyrir ofnæmissjúklinga. Einnig eru þau mýkri en önnur efni og hlífa því baki og fótum mjög vel.

    Eldri Fréttir